Lindaskóli ríkastur skóla

Var að koma af Jólasamstund Lindaskóla í Kópavogi en þangað var foreldrum boðið. Þarna komu fram bekkjardeildirnar, t.d. sá fjórði bekkur um síðasta atriðið; Helgistund.

Atriði barnanna var hljóðfæraleikur, söngur og dans. Öll börnin voru falleg og fullkomin!

Kennararnir komu einnig fram þar sem þeir dönsuðu við lagið Moves Like Jagger.

Lindaskóli er svo sannarlega ríkur með öll þessi dýrmætu börn.


Sissel er fegursta rósin

 

Konan mín var búin að spyrja mig hvenær ég ætlaði með henni í Hörpuna. Ég hafði svarað henni að ég færi með henni þegar Sissel Kyrkjebø yrði í Hörpunni. Svo kynnti Frostrósahópurinn að Sissel yrði með þeim í Hörpu núna 10. des í því sem þau kölluðu Frostrósir Klassík. Svo auðvitað fór ég.

Þarna sungu einsöngvarar nokkur klassísk jólalög, hverjir öðrum betri, þau Garðar Thór Cortes, Hulda Björk Garðarsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson og Ágúst Ólafsson.

Þannig söng Hulda frábærlega Ave Maria Caccini.

Sissel söng nokkur lög, ýmist ein eða með fleirum úr Frostrósahópnum, t.d. Garðari Cortes og ungum pilti, Ara Ólafssyni að nafni. Ari þessi söng með henni lag Andrew Lloyd Webber Pie Jesu. Einnig söng Sissel t.d. lagið Den fagraste rosa. Seinasta lag dagskrárinnar var jólalag sem Sissel kallaði jólalagið sitt, Ó, helga nótt, sem hún gerði sér lítið fyrir og söng á íslensku! Eftir að hópurinn hafði verið klappaður upp sungu einsöngvararnir, Óperukórinn, drengjakór Reykjavíkur og áhorfendur saman Heims um ból.

Ógleymanlegt kvöld í Hörpu!


Auðvitað kyngir Samfylkingin þessu

Í fyrstu gladdist ég þegar ég heyrði niðurstöðu Ögmundar því þarna taldi ég hugsanlegt efni til stjórnarslita. En svo hugsaði ég málið út frá sjónarhorni Samfylkingarinnar. Þau langar auðvitað að hanga á stjórnarstólum sínum sem lengst og vilja því alls ekki fá kosningar fyrr en í lok kjörtímabilsins 2013.

Ef stjórnin myndi springa þá væri Samfylkingunni stillt upp sem landsölumönnum en aðrir flokkar myndu lýsa sér sem landvarnarmönnum (þó Vinstri grænir hafi nú síst efni á því).

Samfylkingin hefur ekki áhuga á sjálfsmorði og því mun hún kyngja þessari niðurstöðu sem og reyndar skattabrjálæði VG líka.


mbl.is Andvíg ákvörðun Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær tíðindi

Það að Hanna Birna bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins er frábært. Þeir sem fylgst hafa með henni í stjórnmálum vita að hún er heiðarleg, réttsýn og sanngjörn. Hún hefur líka trú á fólki til að standa sig í uppbyggingu þjóðfélagsins og vill hjálpa við slíkt öfugt við núverandi stjórnvöld sem reyna helst að draga kjark úr fólki eða hefta það niður.

Best væri að þeir þingmenn sem sátu á þingi fram til 2008 sæu að þeirra tími er liðinn svo þeir bjóði sig ekki fram aftur.


mbl.is Snýst um líklegan sigurvegara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar Cohen ábreiður

220px-Leonard_Cohen_2187-edited

Í síðasta mánuði varð kanadíski snillingurinn Leonard Cohen 77 ára. Ég hef verið mikill aðdáandi hans frá því um 1973, eða þar um bil, þegar Cohen var mikið spilaður á heimili mínu. Síðan hef ég keypt allar plöturnar og spilað þær óskaplega mikið. Fór auðvitað að sjá hann þegar hann kom og lék í Laugardalshöllinni á sínum tíma.

Fyrir stuttu heyrði ég ameríska jazzsöngkonu af frönskum uppruna, Madeleine Peyroux syngja sína ábreiðu af laginu Dance Me To The End Of Love. Þetta gaf hún út 2004 og núna fyrst var ég að heyra þessa snilld. Ég hef aldrei verið áhugamaður um jazztónlist en þarna tekur þessi Peyroux þetta Cohen lag svo frábærlega að orð fá því tæplega lýst. Hér syngur Peyroux lagið á tónleikum.

Aðra Cohen ábreiðu langar mig að benda á, en þar er það söngvari sem heitir Anthony sem syngur lagið If It Be Your Will.


Um fjallvegi á austur- og norðurlandi

Í síðustu viku fór ég um austur- og norðurland og fór yfir flesta fjallvegi á svæðinu. Ég hafði aldrei áður farið yfir Hellisheiði eystri né Oddsskarðið. Báðir vegirnir eru stórhættulegir og sjálfsagt lokaðir stóran hluta vetrar. Sól og blíða fylgdi mér í þessari ferð og það var ekki fyrr en í Héðinsfjarðargöngunum sem bíllinn fékk alvöru bleytu á sig. Göngin leka nefnilega!

Nýi vegurinn milli Raufarhafnar og Kópaskers er mjög góður. Eins er vegurinn milli Sauðárkróks og Skagastrandar líka fínn.

Vaðlaheiði hef ég oft farið yfir en aldrei talið hana neinn sérstakan farartálma. Ef norðlendingar vilja endilega göng þar í gegn er það í lagi mín vegna, borgi þeir þá sjálfir göngin.

Hugsanlega segja einhverjir þá að öll þjóðin þurfi að borga byggingu Hörpu en ég var áður búinn að fordæma byggingu hennar og þá sérstaklega eftir hrunið 2008.


mbl.is Fjármögnun ganga tryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlmenn að verða óþarfir

Það var svo sem vitað að við karlmenn yrðum fyrr eða síðar algerlega óþarfir til að viðhalda lífinu. Konur munu þannig geta einar framkvæmt æxlun.

Mikið sem ég er heppinn að hafa fengið að upplifa tíma þar sem ég gat fengið að eignast börnin mín, og eiga minn nauðsynlega þátt í þeirri æxlun.


mbl.is Búa til sæði úr stofnfrumum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gabbfrétt um greind Internet Explorer notenda

Furðu margir fjölmiðlar og bloggarar (mbl.is og fleiri) hafa fallið fyrir þessari gabbfrétt um meinta greindarmælingu þeirra sem nota hina og þessa vafra. Hér má sjá frétt þar sem gabbinu er lýst.

Þeir sem verða stærstir í einhverjum geira verða við það skotmörk margra, a.m.k. þeirra sem vilja að annar sé stærstur. Á þessu hefur Microsoft lengi fengið að kenna. Fyrirtæki verða því að gæta sín á því að verða ekki of stór og markaðsráðandi. Það er til eitthvað danskt heiti yfir þennan komplex, þ.e. að láta ekki of mikið á sér bera eða skara fram úr á einhvern hátt.

Kannski eru þeir sem trúa fréttinni með lága greindarvísitölu?


mbl.is Notendur IE greindarskertir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfnismat í einhverju rugli

Það vekur undrun mína að Bandaríkin skuli áfram vera með bestu lánshæfnismatseinkunn, eða AAA þrátt fyrir allar þeirra efnahagsþrengingar og brjálaðar skuldir. Skuldir sem sumir segja aldrei verða borgaðar.

Ísland sem erlendir aðilar hafa sagt eigi sér öfundsverðar framtíðarhorfur (og ekki hef ég heyrt það tekið til baka) er hins vegar með miklu slakara lánshæfnismat, gott ef ekki í ruslflokki.

Ég skil þetta ekki alveg.


mbl.is Einungis fyrsta skrefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sissel

Norska söngkonan Sissel Kyrkjebö hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Hér syngur hún lagið Shenandoah:


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband