Mikla þolinmæði þarf til að nota metan
15.5.2012 | 18:32
Ég er á metan bíl frá Volkswagen. Ég get tekið undir þessa frétt. Manni hálfkvíðir alltaf fyrir því að taka metan hjá N1 Bíldshöfða. Ég vissi ekki af því að N1 væri með aðra dælu í Hafnarfirði. Verð að skoða það. Á Bíldshöfða er alltaf biðröð, enda er dælan aðeins ein, með tveimur slöngum og dæling tekur talsvert lengri tíma en að taka bensin eða olíu. Metantankurinn á Volkswagen bílnum dugir í ca. 300 km. akstur.
Eins og fram kemur í fréttinni þá er dælan á Bíldshöfða oft kraftlaus þannig að það næst ekki að setja á nema 3/4 tanksins og þá kemst maður enn styttra á tanknum.
Vonandi stendur þetta til bóta en upplýsingar frá N1 gefa ekki góð fyrirheit um það, því miður. Kosturinn við metannotkun er auðvitað talsvert minni kostnaður og hreinni orkunotkun.
|
Metanbílaeigendur í hremmingum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hvað eiga þeir að gera sem vilja leggja forsetaembættið niður?
7.5.2012 | 16:49
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að rétt væri að leggja forsetaembættið niður. Hef reyndar aldrei kosið í forsetakosningum. En hvernig á ég að sýna þessa skoðun mína? Á ég að fara á kjörstað og skila auðu? Slíkt mætti reyndar túlka þannig að ég væri þá ekki sáttur við neinn frambjóðandann en þó ekki forsetaembættið fyrst ég fór á kjörstað og greiddi þar atkvæði.
Annað mál er að íslenska þjóðin mun seint geta fullþakkað Ólafi Ragnari fyrir hans hjálp við að stöðva fyrri Icesave hryllinginn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Titanic reynist ósökkvandi
14.4.2012 | 14:12
Í gær föstudaginn 13. ákvað ég að laga ljós heima hjá mér sem mér hafði mistekist að gera við fyrir viku síðan. Og viti menn, nú kviknaði ljósið eðlilega - með dimmer og öllu!
Í gærkvöldi ákvað ég síðan í tilefni dagsins að sjá aftur mesta óhapp allra tíma í Titanic 3D. Myndin er nú í þrívídd og verð ég að segja að þrívíddin gerir ekki mikið fyrir myndina en hún er samt frábær skemmtun eins og þegar ég sá hana fyrir 15 árum.
Myndin varð þá vinsælasta kvíkmynd sögunnar en ein mynd hefur náð að skáka henni í vinsældum síðan, en það er myndin Avatar sem sami leikstjórinn, James Cameron, gerði. Hann ákvað núna í tilefni aldarafmælis Titanic slyssins að gefa Titanic út aftur en nú í þrívídd. Í nótt, aðfararnótt 15. apríl verður ein öld frá slysinu.
Og enn fer fólk að sjá Titanic og sagan af þessu hörmulega sjóslysi lifir áfram, þar sem stærsta farþegaskip sem þá hafði verið byggt, sem sagt hafði verið ósökkvandi, rakst á ísjaka og sökk. En minningin um Titanic virðist vera ósökkvandi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sigurstranglegustu lögin skilin eftir
12.2.2012 | 17:12
Lagið sem vann í gær, Mundu eftir mér, er auðvitað ágætt í flutningi þeirra Jónsa og Gretu. Reyndar kannast enginn af þeim sem ég hef talað við að hafa kosið lagið en það er annað mál. Nokkrir þeirra sem ég hef heyrt í segjast hafa kosið lagið Hey, en eins og ég hef áður bent á þá hefði það lag aldrei átt heima í úrslitum Eurovision í maí.
Í gær voru hins vegar tvö mjög góð lög sem hefðu átt sterka sigurmöguleika í Aserbaídsjan í vor. Annars vegar var það hitt lag Gretu; Aldrei sleppir mér, sem var einstaklega flott lag og það sem meira var að það býður upp á svo ótrúlega magnaðar útsetningar. Það reynir því miður aldrei á það.
Hitt lagið var númer tvö í gær en það var lagið Stattu upp með Bláum Ópal. Það lag er er fjörugt og grípandi við fyrstu hlustun, en það er einmitt það sem skiptir mestu máli í sjálfri keppninni.
Samt sem áður óska ég Gretu og Jónsa góðs gengis í Baku.
|
Jónsi og Greta til Bakú |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lindaskóli ríkastur skóla
16.12.2011 | 10:53
Var að koma af Jólasamstund Lindaskóla í Kópavogi en þangað var foreldrum boðið. Þarna komu fram bekkjardeildirnar, t.d. sá fjórði bekkur um síðasta atriðið; Helgistund.
Atriði barnanna var hljóðfæraleikur, söngur og dans. Öll börnin voru falleg og fullkomin!
Kennararnir komu einnig fram þar sem þeir dönsuðu við lagið Moves Like Jagger.
Lindaskóli er svo sannarlega ríkur með öll þessi dýrmætu börn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sissel er fegursta rósin
11.12.2011 | 00:58
Konan mín var búin að spyrja mig hvenær ég ætlaði með henni í Hörpuna. Ég hafði svarað henni að ég færi með henni þegar Sissel Kyrkjebø yrði í Hörpunni. Svo kynnti Frostrósahópurinn að Sissel yrði með þeim í Hörpu núna 10. des í því sem þau kölluðu Frostrósir Klassík. Svo auðvitað fór ég.
Þarna sungu einsöngvarar nokkur klassísk jólalög, hverjir öðrum betri, þau Garðar Thór Cortes, Hulda Björk Garðarsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson og Ágúst Ólafsson.
Þannig söng Hulda frábærlega Ave Maria Caccini.
Sissel söng nokkur lög, ýmist ein eða með fleirum úr Frostrósahópnum, t.d. Garðari Cortes og ungum pilti, Ara Ólafssyni að nafni. Ari þessi söng með henni lag Andrew Lloyd Webber Pie Jesu. Einnig söng Sissel t.d. lagið Den fagraste rosa. Seinasta lag dagskrárinnar var jólalag sem Sissel kallaði jólalagið sitt, Ó, helga nótt, sem hún gerði sér lítið fyrir og söng á íslensku! Eftir að hópurinn hafði verið klappaður upp sungu einsöngvararnir, Óperukórinn, drengjakór Reykjavíkur og áhorfendur saman Heims um ból.
Ógleymanlegt kvöld í Hörpu!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auðvitað kyngir Samfylkingin þessu
25.11.2011 | 18:28
Í fyrstu gladdist ég þegar ég heyrði niðurstöðu Ögmundar því þarna taldi ég hugsanlegt efni til stjórnarslita. En svo hugsaði ég málið út frá sjónarhorni Samfylkingarinnar. Þau langar auðvitað að hanga á stjórnarstólum sínum sem lengst og vilja því alls ekki fá kosningar fyrr en í lok kjörtímabilsins 2013.
Ef stjórnin myndi springa þá væri Samfylkingunni stillt upp sem landsölumönnum en aðrir flokkar myndu lýsa sér sem landvarnarmönnum (þó Vinstri grænir hafi nú síst efni á því).
Samfylkingin hefur ekki áhuga á sjálfsmorði og því mun hún kyngja þessari niðurstöðu sem og reyndar skattabrjálæði VG líka.
|
Andvíg ákvörðun Ögmundar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frábær tíðindi
3.11.2011 | 17:25
Það að Hanna Birna bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins er frábært. Þeir sem fylgst hafa með henni í stjórnmálum vita að hún er heiðarleg, réttsýn og sanngjörn. Hún hefur líka trú á fólki til að standa sig í uppbyggingu þjóðfélagsins og vill hjálpa við slíkt öfugt við núverandi stjórnvöld sem reyna helst að draga kjark úr fólki eða hefta það niður.
Best væri að þeir þingmenn sem sátu á þingi fram til 2008 sæu að þeirra tími er liðinn svo þeir bjóði sig ekki fram aftur.
|
Snýst um líklegan sigurvegara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábærar Cohen ábreiður
7.10.2011 | 23:19
Í síðasta mánuði varð kanadíski snillingurinn Leonard Cohen 77 ára. Ég hef verið mikill aðdáandi hans frá því um 1973, eða þar um bil, þegar Cohen var mikið spilaður á heimili mínu. Síðan hef ég keypt allar plöturnar og spilað þær óskaplega mikið. Fór auðvitað að sjá hann þegar hann kom og lék í Laugardalshöllinni á sínum tíma.
Fyrir stuttu heyrði ég ameríska jazzsöngkonu af frönskum uppruna, Madeleine Peyroux syngja sína ábreiðu af laginu Dance Me To The End Of Love. Þetta gaf hún út 2004 og núna fyrst var ég að heyra þessa snilld. Ég hef aldrei verið áhugamaður um jazztónlist en þarna tekur þessi Peyroux þetta Cohen lag svo frábærlega að orð fá því tæplega lýst. Hér syngur Peyroux lagið á tónleikum.
Aðra Cohen ábreiðu langar mig að benda á, en þar er það söngvari sem heitir Anthony sem syngur lagið If It Be Your Will.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um fjallvegi á austur- og norðurlandi
17.8.2011 | 17:53
Í síðustu viku fór ég um austur- og norðurland og fór yfir flesta fjallvegi á svæðinu. Ég hafði aldrei áður farið yfir Hellisheiði eystri né Oddsskarðið. Báðir vegirnir eru stórhættulegir og sjálfsagt lokaðir stóran hluta vetrar. Sól og blíða fylgdi mér í þessari ferð og það var ekki fyrr en í Héðinsfjarðargöngunum sem bíllinn fékk alvöru bleytu á sig. Göngin leka nefnilega!
Nýi vegurinn milli Raufarhafnar og Kópaskers er mjög góður. Eins er vegurinn milli Sauðárkróks og Skagastrandar líka fínn.
Vaðlaheiði hef ég oft farið yfir en aldrei talið hana neinn sérstakan farartálma. Ef norðlendingar vilja endilega göng þar í gegn er það í lagi mín vegna, borgi þeir þá sjálfir göngin.
Hugsanlega segja einhverjir þá að öll þjóðin þurfi að borga byggingu Hörpu en ég var áður búinn að fordæma byggingu hennar og þá sérstaklega eftir hrunið 2008.
|
Fjármögnun ganga tryggð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)





![lunarmoth4[1]](/img/tncache/s100/12/davpal/img/lunarmoth4_1.jpg)

einarbb
don
astromix
jakobk
kreppan
johanneshlatur
jonlindal
vefritid