Færsluflokkur: Dægurmál

VARÚÐ! Jákvætt blogg...

Margir eru að ausa úr skálum reiði sinnar nú eftir útkomu skýrslu rannsóknarnefndarinnar og sjálfsagt á ég eftir að bætast í þann hóp síðar. En...

Hér langar mig að minnast ánægjulegara stunda úr lífi mínu eða þegar við hjónin ferðuðumst til New York haustið 1998. (Við giftum okkur ári seinna, eða haustið 1999). New York er frábær borg. Þarna sigldum við m.a. hring um Manhattan í ljósaskiptunum. Ekki ónýtt það, get ég sagt ykkur. Það höfðu ekki gefist tímar til ástaleikja vikurnar fyrir New York ferðina og gáfust heldur ekki í einhverjar vikur eftir heimkomuna frá New York. Því vitum við fyrir víst að dóttir okkar kom undir á Park Central Hotel sem er rétt hjá Central Park. Þessi dóttir okkar er því „Made in Manhattan“ og það sem meira er að hún fæddist 3. júlí aðeins nokkrum tímum fyrir þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Það hefði kannski verið of mikið ef hún hefði gert það!

En ástæða þess að ég rifja þetta upp hér er nýtt lag Alicia Keys, Empire State Of Mind sem minnir mig svo sterklega á þessa yndislegu daga í New York;


Reykjavíkurflugvöllur þarf að vera opinn á morgun!

Ég skil ekki alveg svona vinnubrögð. Sem gamall sveitamaður þá þekki ég það að verk sem þarf að vinna séu unnin. T.d. við burð, í heyskap eða annað sem ekki mátti bíða. Sjálfsagt á það sama við í fleiri atvinnugreinum. 

 23988_380297910823_94957260823_4365262_2122971_n

Nú er einstakur atburður að gerast (gosið á Fimmvörðuhálsi) og því verður flugumferð að ganga eðlilega þegar veður til þess gefst. Á morgun er spáð ágætu flugveðri en hvassviðri á mánudag og væntanlega rigningardögum eftir það. 

Reykjavíkurflugvöllur þarf því að vera opinn fyrir flugumferð á morgun!


mbl.is Spara aurinn en kasta krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafn ákveðið á nýja fjallið á Fimmvörðuhálsi

Í dag fór ég inn Emstruveg þaðan sem stutt er í loftlínu að nýja fjallinu á Fimmvörðuhálsi. Margar hugmyndir að nafngift að þessu nýja fjalli hef ég heyrt. Garpur, Skjaldborg, Þórðarfjall og fleiri.

Fimmvörðuháls er þjóðlenda og er í umsjón sveitarfélagsins Rangárþings eystra. Eðlilegast væri að heimamenn fengju að ráða þessu nýja örnefni. Ég geri það að tillögu minni að sveitarstjórn Rangárþings eystra komi sér saman um fáein góð nöfn og láti íbúa Rangárþings eystra kjósa um nafnið samhliða kosningu til sveitarstjórnar í vor.


mbl.is Gosið gæti hafa náð hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Tvö til þrjú þúsund hektarar brunnu“

Ég trúi því einfaldlega ekki að tvö til þrjú þúsund hektarar hafi brunnið á túni við Bakkastaði í kvöld eins og segir í þessari frétt mbl.is. Þetta samsvarar 20 - 30 ferkílómetrum, sem útilokað væri fyrir slökkviliðsmenn að ná að „berja“ niður eld á á rúmum hálftíma.
mbl.is Búið að ráða niðurlögum eldsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unnið í LOTTÓ!

Síðustu mánuði hef ég verið í atvinnuleit sem hefur alls ekki verið auðvelt á þessum síðustu og verstu tímum. Atvinnuumsóknum hefur varla verið svarað. En svo gerðist það fyrir síðustu helgi að ég fékk símtal þar sem mér var boðið í atvinnuviðtal. Þegar ég fór í það viðtal síðasta þriðjudag þá var mér sagt að þeir væru með nokkur nöfn til skoðunar. Daginn eftir bloggaði ég reyndar um hvernig ætti að ná árangri í atvinnuviðtali á sjö sekúndum. Ég efast reyndar um að vinnuveitandinn hafi nokkuð fylgst með bloggi mínu en í gærmorgun var mér boðið í annað viðtal þar sem mér var sagt að valið stæði á milli mín og annars manns sem þeir sögðu mjög sterkan.

Ég fór því ekki of vongóður heim frá því viðtali en seinnipartinn í gær fékk ég svo ánægjulegt símtal frá forstjóra fyrirtækisins þar sem hann sagði mér að ég væri ráðinn. Grin

Hér langar mig að láta fylgja með lagið sem ég var með í spilaranum þegar símtalið góða kom í gær:


Ráð fyrir atvinnuleitendur

Þegar margir ganga um í atvinnuleit eru öll góð ráð vel þegin til að ná starfi. Á blogginu hefur nafni minn Davíð Örn Sveinbjörnsson oft verið með góð og hvetjandi ráð. Vinnumálastofnun og verkalýðsfélög eru hjálpleg líka.

Nýlega rakst ég á athyglisverða grein eftir ráðgjafa frá Kanada sem heitir Dr. Carol Kinsey Goman en hún heldur því fram að vinnuveitendur séu búnir að meta umsækjandann eftir aðeins 7 sekúndur og fátt geti breytt því mati. Því skipti það höfuðmáli að nýta þessar 7 sekúndur fullkomlega. Grein hennar er á ensku en hún nefnir sjö atriði með skýringum sem atvinnuleitendur verði að gæta sín á þessar fyrstu sjö sekúndur sem vinnuveitandinn sér þá. Á þessum fáu sekúndum er fátt sem þú getur sagt sem getur haft úrslitaáhrif á vinnuveitandann. Það er fyrst og fremst líkamstjáningin sem skiptir hér höfuðmáli.

1. Viðmót
2. Vertu beinn í baki
3. Brostu
4. Náðu augnsambandi
5. Lyftu augnabrúnum
6. Hallaðu þér örlítið fram á við
7. Handtak

Í atvinnuviðtali hefur þú tækifæri til að ná jákvæðum fyrstu kynnum. Þú hefur aðeins sjö sekúndur en ef þú nýtir þær vel þá þarftu ekki nema sjö sekúndur.


Hugmyndir að verkefnum til þjóðarhags

Jákvæð blogg eru ekki algeng um þessar mundir. Hér langar mig að tína til nokkra punkta sem gætu verið þjóðinni til framdráttar:

-          Vellauðugir Bandaríkjamenn halda sig saman og einangruðum frá amstri venjulegs fólks. T.d. eru þeir með lokaða skíðaskála. Þ.e. lokaðar skíðaparadísir öllum öðrum en þessu vellauðuga fólki. Hvernig væri að koma með einhverjum hætti íslensku landkynningarefni inn á þessa staði? Slíkt gæti vakið áhuga þessa fólks á að heimsækja Ísland. Ísland græðir á því.

-          Ýmsar hugmyndir hafa verið í gangi með að rafbílavæða Ísland, t.d.  http://www.nle.is/ Í þessu þyrfti að taka mun stærri skref. T.d. með því að gera samning við stóran bílaframleiðanda, t.d. Nissan um þáttöku í þessu verkefni. Ísland græðir á því. Sjá hér.

-          Reykjanesskagann allan, eða a.m.k. þann hluta hans sem er í eigu sveitarfélaga, þyrfti að leggja undir skógrækt. Reykjanesið er orðið nær alveg laust við búfjárbeit og því ætti þetta að vera mögulegt. Þetta kostar mikinn mannafla við gróðursetningu en skólafólki af höfuðborgarsvæðinu vantar sumarvinnu. Þarna mætti gróðursetja bæði birki og víði. Slíkt þyrfti þá að rækta í bökkum í gróðurhúsum í stórum stíl til undirbúnings gróðursetningu. Ísland græðir á því. Gróðursetningu fylgir fuglalíf svo ekki væri rétt að fara of nálægt Keflavíkurflugvelli með skóginn.

 

Fleiri hugmyndir síðar.


Þetta er þó jákvætt

Já, þetta er þó jákvætt. Í eitt og hálft ár hafa allir sem einhverju ráða talað allt niður. Gengið hefur verið talað niður, atvinnustig hefur verið talað niður og þjóðin öll hefur satt að segja verið sífellt töluð niður. Vonandi fer nú að verða breyting á. Í rauninni ætti það að vera eina starf forsætisráðherra að tala þjóðina upp. Vera bjartsýnn og með fulla trú á hvern Íslending. Sjá jákvæðu hlutina og leggja áhersluna á þá.

Því við komumst upp úr þessari kreppu. Með krafti og trú á því sem við gerum. Vilji er allt sem þarf!


mbl.is Hverfandi hætta á greiðslufalli ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gos í Eyjafjallajökli gæti hugsanlega haft áhrif á nýju Landeyjahöfnina

Verði gos í Eyjafjallajökli gæti hugsanlega orðið mikið flóð niður Markarfljótið sem gæti þá hugsanlega haft áhrif á hina nýju Landeyjahöfn.

Einhver völvan var þó búin að segja að ekkert eldgos yrði á Íslandi þetta árið svo við getum þá bara andað rólega. Smile

En bíðum við; það hefur verið sagt að Íslands óhamingju verði allt að vopni. Undecided

Hvað um það: Stöndum öll bein í baki, saman á morgun og kjósum NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni.


mbl.is Fyrsta háskastigi lýst yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir sem vettlingi geta valdið á kjörstað á laugardag

Nú er mjög mikilvægt að sem allra flestir mæti á kjörstað og kjósi gegn Icesave lögunum sem samþykkt voru á Alþingi í lok desember. Gera má ráð fyrir því að Bretar og Hollendingar muni túlka skoðanir þeirra sem ekki kjósa á þann hátt að þeir séu með því að samþykkja ómælda skuldaklafa á komandi kynslóðir ófæddra íslenskra barna.

Framtíðarkynslóðir Íslendinga munu dæma þá sem ekki börðust fyrir betri Icesave samningi á sama hátt og þá sem stóðu fyrir þessu Icesave dæmi í upphafi. Hver vill vera þá í liði með Björgólfum, Sigurjóni og félögum? Ekki ég og því segi ég NEI á laugardaginn!


mbl.is Atkvæðagreiðslan undirbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband