Thriller á Lækjartorgi á Menningarnótt
22.8.2010 | 14:04
Á fjórða tímanum í gær tók hópur sig saman og dansaði við lagið Thriller á Lækjartorgi. Þó þarna væri nokkuð hvasst þá heppnaðist þetta vel. Þetta var ekki á dagskrá Menningarnætur heldur var þarna hópur sem hafði dansað þetta áður í afmæli eins úr hópnum og ákvað að vera með þennan gjörning þarna til gamans.
Athugasemdir
Þetta var óvænt og skemmtilegt. Ég þvælist inn á myndinni í upphafi í mosagrænum jakka og vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar fólk fór að hreyfast eins og múmíur.
Emil Hannes Valgeirsson, 22.8.2010 kl. 16:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.