Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokks er reiðast allra vegna hrunsins

Því hefur verið haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji fella ríkisstjórnina og komast í ríkisstjórn til að stoppa rannsóknina á hruninu. Ekkert er fjær sanni að mínu mati.

Það er stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins sem er reiðast allra vegna hrunsins. Grunngildi þess fólks höfðu verið fótum troðin og svert. Menn eins og Sigurjón Árnason, Björgólfarnir, Jón Ásgeir og Geir Haarde geta þá fyrst farið að biðja Guð að hjálpa sér komist Sjálfstæðisflokkurinn aftur í stjórn.

Það sama á við fólk eins og Bjarna Ben, Þorgerði og Illuga hafi þau brotið af sér.


mbl.is Gefur sér að forsetinn synji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

allir sem ég þekki hefðu viljað sjá rannsókn lokið - hvað sem verður þá tel ég að allir sem einn vilji komast að niðurstöðu sem sem flestir eru sáttir við - undanskilið flokkum

Jón Snæbjörnsson, 5.1.2010 kl. 10:53

2 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Þetta er svo hárrétt greining hjá þér.

Ég þekki ekki þann sjálfstæðismann sem vill ekki fá allt upp á borðið og gera almennilega upp við fortíðina. Alveg sama þó það komi flokknum illa.

Það er alger grunnforsenda þess að hægt sé að vinna flokkinn og stefnu hans almennilega upp á ný í samfélagið.

Carl Jóhann Granz, 5.1.2010 kl. 11:35

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Jamm, ég hef heyrt marga sjálfstæðismenn bölva og vilja allt uppá borðið og eru verulega ósáttir við fyrrverandi og núverandi forystu.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 5.1.2010 kl. 17:03

4 Smámynd: Guðmundur Guðmundsson

Ég efa ekki að hluti þeirra 40% kjósenda sem kosið hafa Sjálfstæðisflokkinn trekk í trekk sé svekktur og spældur og finnist hann hafa verið narraður. Ekki hefur allt þetta fólk stofnað einkahlutafélög í kringum vinnuna sína til þess að losna við að borga til samfélagsins. Ekki hafa allir kjósendur Sjálfstæðisflokksins innleyst hagnað ár eftir ár og borgað skitin 10% í fjármagnstekjuskatt á meðan að aðrir hafa borgað þrefalda eða fjórfalda skatta.

En þú hlýtur að lifa í vernduðu umhverfi ef þú heldur að kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu reiðastir allra. Þú ruglar saman reiði og SKÖMM.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru EKKI REIÐASTIR heldur SKAMMAST SÍN MEST. Ástæðan er sú að þeir ekki aðeins kusu yfir sig óþverran ár eftir ár heldur vegna þess að ÞEIR GRÆDDU Á SVIKAMYLLUNNI.

Hvernig heldurðu að stemmingin sé hjá okkur hinum, sem ALDREI studdum ykkur heldur þvert á móti? Við borguðum fullan tekjuskatt á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn gaf vinum sínum eigur þjóðarinnar og lækkaði skattana á þeim ríku. Og núna þurfum við að DRAGA YKKUR UPP ÚR SKÍTNUM!

TRÚÐU MÉR. ÞÚ VEIST EKKERT HVAÐ REIÐI ER.

Guðmundur Guðmundsson, 9.1.2010 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband