Nokkur orð um söngvakeppnina
7.2.2010 | 12:27
Fyrir keppnina var ég viss um að lag Örlygs Smára myndi sigra og að lag Óskars Páls og Bubba yrði í öðru sæti. Þetta kom ekki á óvart. Röð næstu laga hefur ekki verið gefin upp en ég myndi ætla að hún hefði verið þessi: 3. sæti Waterslide, 4. sæti Gleði og glens, 5. sæti The One og 6. sæti Out Of Sight.
Í gærkvöldi var söngur flestra langt undir getu. Kannski hefur einhver hálsbólga verið að ganga?
Eitt sem mér finnst lélegt hjá Sjónvarpinu en það er lýsingin á settinu. Söngvarar eru illa upplýstir og sviðsmyndin dimm. Þetta hefur verið gegnumgangandi í sjónvarpsþáttum hjá RÚV og er kannski einhver ákvörðun þeirra sem vill láta allt líta út eins og um myrkraverk sé að ræða.
RÚV menn. Berið saman Jóhönnu Guðrúnu syngja í þættinum í gær og Jóhönnu Guðrúnu syngja í Moskvu í fyrra. Bókstaflega eins og svart og hvítt!
Hera Björk fulltrúi Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.